Hoppa yfir í aðalefni

VScode

Margir notendur nota VScode til þess að tengjast Elju en það getur verið erfitt ferli að heimila xforwarding í gegnum VScode. Hér eru leiðbeiningar til þess að setja það upp.

Skref 1

Fyrsta skrefið er að keyra XLaunch til þess að heimila xforwarding. Til þess að setja það upp þá er best að fylgja leiðbeinungunum í þessum kafla hér

Skref 2

Byrjaðu á að opna VScode of smella á F1 hnappinn á lyklaborðinu og skrifaðu Preferences: Open Settings (UI)

pressF1

Skref 3

Leitaðu núna eftir terminal.integrated.env.windows og smelltu á Edit in settings.json eins og er sýnt á myndinni hér fyrir neðan

pressF1

Skref 4

Eftir skref 3 þá ætti vscode að opna skjal sem heitir settings.json og þar bættu við eftirfarandi línu:

    "terminal.integrated.env.windows": {    
"DISPLAY": "127.0.0.1:0.0"
},

Vistaðu og lokaðu síðan glugganum

Skref 5

Í SSH config skjalinu, staðsetning á því skjali er breytanleg en á oftast til að vera staðsett ~/.ssh/config og bættu eftirfarandi við í skjalið.

Host TestX11 #breytilegt
HostName elja.hi.is
User <Notendanafnið þitt>
ForwardAgent yes
ForwardX11 yes
ForwardX11Trusted yes
IdentityFile <location of private key>

Skref 6

Þetta skref krefst þess að notandi þarf að bæta við "remote-ssh" extenstion

Tengdu þig við Elju með því að smella á græna hnappinn sem er staðsett í vinstra horninu á skjánum og smelltu á connect to Host... eins og má sjá í með fylgjandi skjali.

Alt text

og eins og má sjá á næstu mynd smelltu á nafnið á 'HOST', í þessu tilfelli TestX11, sem þú villt tengjast við.

Alt text

Skref 7

Þegar þú ert tegnajst við Elja athugaðu ef xforwarding er að virka með því að skrifa xclock í terminal-ið hjá þér eins meðfylgjandi mynd sýnir: Alt text