Hoppa yfir í aðalefni

MatLab

Nú er Matlab fáanlegt sem Singularity gámur. Þú munt þurfa að gefa upp MathWorks aðgangs póstfangið sem þú notar fyrir þitt Matlab leyfi.

Hlaða inn Matlab

Matlab er fáanlegt sem eining á Elju

$ ml load Matlab

Keyra Matlab

Til að keyra Matlab notaðu matlab skipunina.

Athugið

Þú þarft að vera í Gagnvirkri Lotu eða keyra Lotuverkefni til að nota matlab.

Virka Matlab leyfið þitt á Elju

Ef þetta er fyrsta skiptið sem þú keyrir Matlab á Elju munt þú vera beðin um MatWorks aðgangs póstfangið þitt:

$ srun --job-name "Matlab Job" --partition any_cpu --cpus-per-task 24 --mem-per-cpu 3900 --time 02:00:00 --pty bash
$ matlab
MATLAB is selecting SOFTWARE OPENGL rendering.
Please enter your MathWorks Account email address and press Enter:

Ef þú ert stafsmaður eða nemandi getur þú notað <uname>@hi.is póstfangið þitt, annars verður þú að skaffa póstfangi með virku leyfi á.

Þegar þú hefur slegið inn póstfangið þitt munt þú fá einnota lykilorð sem þú nálgast hér.

Single-Sign-On(SSO) is not available in this environment. You need a one-time password to sign in to MATLAB.
Step 1. Visit https://www.mathworks.com/mwa/otp
Step 2. Copy the password.
Step 3. Return here, and input the password.
Please enter the one-time password:

Farðu inn á slóðina og sláðu síðan einnota lykilorðið inn í skipanagluggan. Leyfið þitt ætti nú að vera virkt of þú getur notað Matlab á Elju

Hello, Matlab!

Búðu til skrá nefnda hello.m og bættu við eftirfarandi línuam:

$ touch hello.m
$ echo "disp("Hello, Matlab!");" > hello.m

Nú getum við keyrt skrána okkar í gagnvirkri lotu:

$ matlab -r "run('hello.m')"
Starting MATLAB with license: xxxxxxx - MATLAB (Individual)

< M A T L A B (R) >
Copyright 1984-2023 The MathWorks, Inc.
R2023a Update 3 (9.14.0.2286388) 64-bit (glnxa64)
May 25, 2023


To get started, type doc.
For product information, visit www.mathworks.com.

Hello, Matlab!